Sýnir færslur með efnisorðinu biscotti. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu biscotti. Sýna allar færslur

mánudagur, 25. febrúar 2013

Snjókorn falla og biscotti



Það snjóar og snjóar og snjóar þessa dagana og það er næstum því að gera mig bilaða. Næstum því. Það er bara ein leið til þess að tækla svona veður: að eiga nóg af heimabökuðu biscotti til að dýfa ofan í kaffi- eða tebollann. Biscotti gerir lífið hreinlega betra. Þannig er það bara.

mynd:
Lísa Hjalt

þriðjudagur, 15. janúar 2013

Kaffi, biscotti og franska Vogue



Flensan bankaði á dyrnar á okkar bæ í síðustu viku en sem betur fer hefur hún bara náð tökum á elsta barninu, sem liggur enn þá. Við hin sleppum vonandi. Það er gott á svona stundum að eiga eitthvað skemmtilegt að lesa og helst birgðir af biscotti til að dýfa ofan í kaffi eða te (uppskriftin er á matarblogginu).


Ég fékk eintak af franska Vogue í gær og þó ég sé ekki beint sterk í frönsku þá nýt ég blaðsins. Þetta er desember/janúar útgáfan og sérstakur gestur í blaðinu er Carla Bruni, fyrrverandi forsetafrú Frakklands, módel og söngkona. Hún leyfir lesendum að gægjast inn í stúdíóið sitt og deilir m.a. safni kvikmyndaplakata sem hún á. Hún situr líka fyrir í nýjum tískuþætti og við fáum að sjá gamlar tískumyndir frá módelferli hennar. Sem sagt skemmtileg blanda af menningu og tísku, nákvæmlega eins og ég vil hafa það.