fimmtudagur, 30. janúar 2014

augnablikið 12



Ég hélt að við slyppum við veturinn en þegar ég fór út í morgun þá var frekar kalt og stuttu síðar féllu snjókorn til jarðar. Snjór sem ég kýs að kalla jólasnjó. Það minnti mig á þessa mynd í möppunum mínum. Börnin mín og eiginmaður eru miklir aðdáendur Múmínálfanna og um tíma höfðu þau það sem reglu að horfa saman á einn þátt fyrir svefninn. Það var þeirra gæðatími saman - heilög stund. Þessi mynd er tekin í Múmínálfa-skemmtigarðinum í Naantali í Finnlandi, rétt fyrir utan Turku. Ég held að það gæti verið ævintýralegt ferðalag að skella sér þangað með börn, sérstaklega ef þau eru aðdáendur Múmínálfanna.

mynd:
Miki K. (500px)

miðvikudagur, 29. janúar 2014

Rýmið 51




- eldhús í Marrakesh í Marokkó
- hönnuðir Karl Fournier og Olivier Marty hjá Studio KO

mynd:
Philippe Garcia fyrir franska AD, n°120, nóvember 2013

þriðjudagur, 28. janúar 2014

Innlit: 17. aldar sveitasetur í Normandie-héraði



Minn persónulegi stíll er meira í takt við það sem sést í skandinavískri hönnun í bland við hráan stíl, en hluti af mér er svolítið veikur fyrir glæsilegum sveitasetrum eins og þessu franska 17. aldar húsi í Normandie-héraði. Húsið var í niðurníðslu þegar innanhússhönnuðurinn Charles Spada var ráðinn til að bjarga því. Þessar myndir eru hluti af þeim sem birtust í grein í tímaritinu Veranda fyrir tveimur árum síðan en ef þið hafið áhuga þá fann ég aðrar myndir sem sýna endurbyggingu hússins.


myndir:
Alexandre Bailhache fyrir Veranda, jan/feb 2012 af blogginu {this is glamorous}

fimmtudagur, 23. janúar 2014

Tískuþátturinn: Sonia Rykiel Resort 2014



Það er kominn vorhugur í mig og þessar myndir eru ein af ástæðunum. Þær eru að vísu hluti af Resort-línu tískuhússins Sonia Rykiel, sem kemur í búðir í nóvember, en þegar ég opnaði nýju heimasíðuna þeirra um daginn og sá þær þá þráði ég sól og hlýrri daga. Ég get að vísu ekki kvartað því veturinn hefur verið svo mildur, en nú er ég til í að skipta út kápum, úlpum og treflum fyrir léttari flíkur.


myndir:
Sonia Rykiel Resort 2014

miðvikudagur, 22. janúar 2014

Rýmið 50



Þetta er fimmtugasti rýmispósturinn á blogginu og ég ákvað að halda áfram með stemninguna frá því í gær. Þessi stofa, sem kallast Brodsworth Hall, er á ensku sveitasetri sem kallast Angelfield House. Húsið var tökustaður breskrar sjónvarpsmyndar, Thirteenth Tale, sem var sýnd á BBC um jólin. Því miður missti ég af henni, sennilega vegna þess að ég horfi aldrei á sjónvarp. En ég hefði alveg verið til í að kveikja á því fyrir þessa mynd, það er nokkuð ljóst. Frábærir leikarar og söguþráðurinn greinilega spennandi! Myndin var byggð á samnefndri bók eftir Diane Setterfield.

mynd:
Brodsworth Hall, Angelfield House af síðu English Heritage á Twitter

þriðjudagur, 21. janúar 2014

augnablikið 11



Ég er í hvítu og bláu skapi í dag (ég póstaði fallega stíliseruðum myndaþætti á ensku útgáfu bloggsins sem sýnir m.a. dekkað borð; hvítt leirtau með bláu mynstri, sem heillar mig alltaf). Það vill svo til að ég er á leið út í skóla sonarins að fylgjast með fiðlutíma og því var þessi mynd kjörin á bloggið í dag (er selló ekki næsti bær við fiðlu?). Hann byrjaði að læra á fiðlu í skólanum þegar við fluttum til Englands og ég hélt að hljóðin myndu kannski æra okkur öll, en það fer nákvæmlega ekkert í taugarnar á okkur þegar hann tekur upp hljóðfærið og æfir sig. Meira að segja systur hans kvarta ekki!

mynd:
Mario Testino fyrir Vogue US, maí 2005 | fyrirsæta: Gemma Ward í ,Hot Town' | stílisering: Tonne Goodman af blogginu Books and Art

miðvikudagur, 15. janúar 2014

Rýmið 49



Því miður veit ég ekkert um þessa borðstofu annað en að ljósmyndarinn Debi Treloar tók myndina. Rýmið er greinilega hluti af sveitasetri ef við skoðum það litla sem sést út um gluggann en mér hefur ekki tekist að finna hvaða sveitasetur það er. Ég verð því að láta rómantísku stemninguna í myndinni nægja í dag.

mynd:
Debi Treloar af blogginu La Cocina de Tina

þriðjudagur, 14. janúar 2014

Innlit: lúxus og bóhemískur stíll á grísku eyjunni Mykonos



Innlitið að þessu sinni er strandhótelið San Giorgio á grísku eyjunni Mykonos þar sem lúxus og bóhemstíll mætast. Í boði eru 33 herbergi þar sem hvítir veggir, húsgögn úr hráu timbri, bastkörfur og -mottur ásamt fallegum textíl leika lykilhlutverk. Hvað þarf maður meira þegar gríska Eyjahafið í allri sinni dýrð er innan seilingar?


myndir:
San Giorgio af vefsíðu Est Magazine

fimmtudagur, 9. janúar 2014

Tískuþátturinn: Helmut Lang



Það er svo sannarlega enginn blúndustíll á nýjustu „pre-haust“ línunni frá tískuhúsinu Helmut Lang, en þar ráða hönnuðirnir Michael og Nicole Colovos ríkjum. Línan einkennist af hvítu og svörtu, einfaldleika og hreinum línum, rétt eins og vorlínan. Þau í raun unnu bara áfram með vorlínuna í stað þess að vera að búa til eitthvað alveg nýtt. Það verður svo spennandi að sjá hvað þau kynna fyrir haustið og veturinn á tískuvíkunni í New York í febrúar næstkomandi.


myndir:
Helmut Lang pre-haust 2014 af vefsíðu Vogue US

miðvikudagur, 8. janúar 2014

augnablikið 10



Þetta er án efa ein sú fallegasta vetrarmynd sem ég hef augum litið. Það var ljósmyndarinn Achim Thomae sem fangaði þetta stórkostlega Alpafjallalandslag í Bæjaralandi. Þegar ég var yngri þá bjó ég í Sviss um tíma og ferðaðist töluvert á milli Sviss og Þýskalands. Útsýnið á sumum stöðum þarna er slíkt að maður fær verk í hjartað við að horfa.

mynd:
Achim Thomae (500px)

þriðjudagur, 7. janúar 2014

Rýmið 48



Stundum vildi ég að ég byggi í Ástralíu svo ég gæti skotist út í búð og gripið eintak af Vogue Living þegar mér hentar. Ég hef séð myndir úr hinum ýmsu umfjöllunum í blaðinu og allar eiga þær það sameiginlegt að vera smekklegar. Því miður veit ég engin nánari deili á þessu eldhúsi því ég hef bara þessa einu mynd. Mér þykir líklegt að þetta sé umfjöllun um sumarbústað eða sveitabæ, en það sem vakti áhuga minn voru fallegu hvítu og bláu eldhúsmunirnir. Ég er alltaf svolítið veik fyrir svona mynstrum og mig dauðlangar í þessar könnur þarna í efstu hillunni. Ég verð að finna flóamarkað fljótlega og sjá hvort ég hafi heppnina með mér.

mynd:
Jonny Valiant fyrir Vogue Living af Pinterest

mánudagur, 6. janúar 2014

Innlit: norskur fjallakofi í Geilo



Þessi póstur er tileinkaður þolinmóða eiginmanninum sem uppbót fyrir þær stundir sem ég er upptekin að sækja mér innblástur á netinu og veiti honum litla athygli. Norskir fjallakofar höfða sterkt til hans og þegar við bjuggum á Íslandi þá keypti hann oft eitthvað norskt fjallakofatímarit. Timbrið og handverkið heillaði hann. Þessi tiltekni kofi er í Geilo, sem er þekkt úitvistarsvæði í Noregi með skíðavæðum (liggur svo til mitt á milli Osló og Bergen ef maður lítur aðeins norðar á kortið), og eins og sést er búið að taka hann allan í gegn. Án þess að vilja hljóma neikvæð þá er ég persónulega ekki hrifin af skrautmáluðum við en norskara gerist það varla. Mér finnst annars antíkgræni liturinn í leskróknum afskaplega fallegur og hlýlegur.


myndir:
Anette Nordstrøm fyrir Interiør Magasinet

fimmtudagur, 2. janúar 2014

Tískuþátturinn: 3.1 Phillip Lim



Á flakki mínu um bloggheima í gær rakst ég á myndir frá tískuhönnuðinum Phillip Lim. Tískuhúsið hans kallast 3.1 Phillip Lim og fyrir jólin settu þeir saman „lookbook“ með mörgum ákaflega smart samsetningum. Ég er ekki mikið fyrir að nota yfirdrifinn ritstíl og lýsingarorð í efsta stigi hérna á blogginu, en ég bara verð að segja að mér finnst þetta sjúklega smart. Ég veit að hvít dragt fer mér ekki en ég held að ég þurfi að huga að því að eignast hvítar buxur í fataskápinn.


TÍSKUTENGLAR

  Á ensku útgáfu bloggsins í dag einblíndi ég á götustíl og birti nokkrar af mínum uppáhaldsmyndum af Capucine Safyurtlu hjá franska Vogue, sem mér finnst ákaflega smart kona. Ég væri til í að eiga skyrtusafnið hennar
  Talandi um franska Vogue, sáuð þið desembertölublaðið? Victoria Beckham var gestaritstjóri og mér finnst þessi mynd af þeim Beckham-hjónum flott
  Það er við hæfi að enda þennan póst á hvítri buxnadragt þar sem hann byrjaði á einn slíkri, en hér er það Anya Ziourova, stílisti og tískustjórnandi rússneska Tatler sem ber hana vel á mynd sem ég pinnaði í dag

myndir:
3.1 Phillip Lim Lookbook jólin 2013 (fyrst séð á blogginu {this is glamorous})