föstudagur, 31. október 2014



Það stóð nú alltaf til að tilkynna að ég væri á leiðinni í stutt bloggfrí fram í næstu viku vegna haustfrís í skólum barnanna, en það fór svo að ég tilkynnti það bara á ensku útgáfunni. Undanfarnar vikur hafa leitað á mig hugmyndir að breytingu á bloggunum og núna í fríinu hafa þær orðið skýrari og eiginlega ekki látið mig í friði. Án þess að fara nánar út í þær hér þá ætla ég að gera hlé á íslensku útgáfu bloggins fram yfir áramótin og nota frekar tímann til að leika mér aðeins með þessar hugmyndir mínar. Ég mæti aftur til leiks á ensku útgáfunni á miðvikudaginn í næstu viku.

Gleðilega hrekkjavöku!

fimmtudagur, 16. október 2014

Innlit: fyrrum textílverksmiðja í Como



Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta innlit. Ítalski arkitektinn og listamaðurinn Marco Vido endurgerði þetta ris í Como á Ítalíu en á 3. áratugnum var húsið textílverksmiðja. Ég er í einhvers konar haltu mér-slepptu mér sambandi við iðnaðarstíl því stundum finnst mér hann of kaldur og fráhrindandi. Hérna finnst mér hafa vel tekist til því það er nóg af hlýjum við sem skapar jafnvægi. Auk þess finnst mér svörtu gluggarnir svakalega flottir.


myndir:
Nathalie Krag fyrir Interior Design, ágúst 2014 af Pinterest

miðvikudagur, 15. október 2014

Rýmið 76



- forstofa íbúðar í Mílan
- eigandi og hönnuður Roberto Peregalli (og Laura Sartori Rimini), innblásinn af hönnuðinum Lorenzo (Renzo) Mongiardino

mynd:
The World of Interiors, júlí 2013 af síðu Jane Ellsworth Interiors/Pinterest

miðvikudagur, 8. október 2014

Handmáluð viskustykki frá Bertozzi


Í vikunni uppgötvaði ég vefsíðu AllÓRA, sem er verslun í London sem selur hvers kyns ítalskt handverk. Ítalska orðið allóra þýðir ,í fortíðinni' og kjörorð fyrirtækisins eru ,oggi come AllÓRA' sem mætti þýðast 'í dag sem þá'. Hjá AllÓRA hafa þau myndað náið samband við handverksfólkið og þau leggja áherslu á gæði vörunnar og að hún sé ekta, að handverkið sé fallegt og unnið með ástríðu. Verslunin, sem er einnig netverslun, býður upp á gott úrval en það sem aðallega fangaði athygli mína voru handmáluðu viskustykkin frá ítalska fyrirtækinu Stamperia Bertozzi.
Handmáluð viskustykki frá Bertozzi · Lísa Hjalt


Stamperia Bertozzi er ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1920. Þau nota fornar handverksaðferðir til að búa til handmáluð og handprentuð efni með ástríðu. Þau blanda litina sjálf og nota blöndur sem hafa varðveist innan fjölskyldunnar, frá einni kynslóð til annarrar.

Þessi stílhreinu viskustykki - línan kallast Gradation - eru unnin úr 100% líni. Efnið sem er notað í viskustykkin er lífrænt og ofið í vefstól sem skilar efni sem er mjúkt viðkomu. Með tímanum tekur það breytingum og verður bara fallegra í útliti.

Þegar efnið er málað er það ekki bara sett til hliðar og látið þorna heldur er línið unnið þrisvar sinnum og málað með mismunandi litatón í hvert sinn. Að lokum nota þau sérstaka Bertozzi handverksaðferð til að festa litinn sem felst í því að nota gufu sem er drifin með sólarorku. Útkoman er skær eða sterkur litur sem endist lengur.

Ég féll kylliflöt fyrir viskustykkjunum í bláu (indigo) og brúnu (cacao) og myndi gjarna vilja sjá þau í mínu eldhúsi, en Gradation-línan er einnig fáanleg í grænu og bleiku.

- stærð – 70 x 55 cm - má fara í þvottavél - þarf ekki að strauja


AllÓRA | 66 Oxford Gardens | London W10 5UN
Sími: +44 (0)20 3701 4076 | Netfang: info@allorashop.com

myndir:
af vetsíðu AllÓRA

þriðjudagur, 7. október 2014

Rýmið 75



- stofa í húsi á nýsjálensku eyjunni Waiheke Island, Auckland
- hönnun Fearon Hay Architects

mynd:
Patrick Reynolds fyrir Fearon Hay Architects af vefsíðu ArchDaily

fimmtudagur, 2. október 2014

Innlit: þakíbúð með verönd í East Village, NY



Á fimmtudögum á ensku útgáfu bloggsins er ég með seríu þar sem ég birti veröndir og önnur útisvæði. Í dag var ég með stóra verönd virklega fallegrar þakíbúðar í East Village hverfinu í New York og hugsaði með mér, því ekki að deila innri rýmunum hér á íslensku útgáfunni. Það var arkitektinn Michael Neumann sem hjálpaði eigendunum að ráðast í endurnýjun og miklar breytingar á húsnæðinu. Glerhurðirnar með svörtu römmunum og bogadregnu gluggarnir sem einkenna rýmið finnst mér hafa heppnast ákaflega vel, en samtals fimm hurðir opnast út á veröndina. Stíllinn er hrár en samt hlýlegur, mikið er um muni úr náttúrulegum efnum og brúnir tónar eru einkennandi.


Einn eigandanna er einn af yfirmönnum hjá Ralph Lauren veldinu og því er að finna mikið af húsgögnum og munum fyrir heimilið frá Ralph Lauren Home, til dæmis sófann og stólana í stofunni. Rammaða prentverkið fyrir ofan arininn er eftir Richard Serra.


Persónulega langaði mig að sleppa að nota þessa mynd af borðstofunni því mér finnst borðskreytingin svo yfirdrifin eða, svo ég segi það bara hreint út, forljót. En hin myndin sem ég fann var bara of lítil. Ég vildi samt sýna ykkur rýmið því þaðan sést vel út á veröndina og myndin sýnir hurðirnar og gluggana vel. Það er annars alveg merkilegt hvað þetta er algeng stílisering í innlitum í amerískum tímaritum, eins og það þurfi alltaf að vera einhver svakalegur vasi með risastórum blómum eða greinum ofan á hringborði sem gnæfir yfir allt annað. Þess má geta að stólarnir í iðnaðar- eða verksmiðjustílnum eru gamlir Tolix stólar og eru líka notaðir við borðið á veröndinni.


myndir:
Miguel Flores-Vianna fyrir Architectural Digest, apríl 2012

þriðjudagur, 30. september 2014

Ný keramiklína: POME-POME



Eruð þið að leita að fallegum og stílhreinum munum til að prýða borðið ykkar, einhverju nýju til að safna? Nú í haust er væntanleg á markað ný keramiklína, POME-POME, frá hinni dönsku Malene Helbak, sem hún hannaði í samstarfi við sænska grafíska hönnuðinn Nygårds Maria. Þær stöllur sóttu innblástur í jurtaríkið og allir munirnir eru hvítir með sæbláum og petról-bláum (er til íslenskt heiti yfir svona lit?), mintugrænum og appelsínugulum tónum. Er það klisja að segja að það gerist varla skandinavískara? Ég veit ekki með ykkur en ég gæti vel hugsað mér að dekka mitt borð með þessum munum.

mynd:
af vefsíðu Bo Bedre

föstudagur, 26. september 2014

Góða helgi



Um leið og ég óska ykkur góðrar helgar þá langaði mig að segja að nú er tískuvikan í París í fullum gangi og ég hlakka svolítið til að sjá hvað Isabel Marant sýnir í dag. Annars er ég mikill aðdáandi belgíska hönnuðarins Dries Van Noten, en sú aðdáun hófst áður en við fluttum til Antwerpen á sínum tíma og gerði ekkert nema að dýpka í þau tvö ár sem við bjuggum þar. Ég póstaði nokkrum myndum úr línu Dries Van Noten fyrir vorið 2015 á ensku útgáfunni í dag. Ef þið hafið áhuga á textíl þá skuluð þið endilega smella á tengilinn.

mynd:
Lisa Cohen fyrir Vogue Living

fimmtudagur, 25. september 2014

Rýmið 74



- stofa eða leskrókur með arni í hlutlausum tónum í Hollywood
- eigandi er Darren Star, maðurinn á bak við sjónvarpsþætti eins og Sex and the City, Beverly Hills, 90210 og Melrose Place
- innanhússhönnun var í höndum Waldo's Designs og um arkitektúr sá Rios Clementi Hale Studios

mynd:
Roger Davies fyrir Architectural Digest, mars 2012

miðvikudagur, 24. september 2014

Tískuvikan í Mílanó: Emilio Pucci vor 2015



Það fer ekkert á milli mála að ítölsku hönnuðurnir sem sýndu vorlínur sínar á tískuvikunni í Mílanó eru með hugann við 8. áratuginn. Um daginn sýndi ég ykkur brot af línu Frida Giannini fyrir Gucci og sömu strauma mátti sjá hjá Peter Dundas fyrir Emilio Pucci tískuhúsið. Að vísu er það ekkert sem þarf að koma á óvart þegar Dundas á í hlut því það má alltaf treysta á mynstur og víða, fljótandi kjóla frá honum, eða maxi kjóla, eins og þeir kallast. Hér eru nokkar flíkur og stíliseringar sem heilluðu mig og ég verð að minnast á klútana sem mér finnst svakalega smart.


mynd:
Emilio Pucci vor 2015 af síðu Style.com

mánudagur, 22. september 2014

ný bók: Modern Country eftir Caroline Clifton-Mogg



Um daginn minntist ég örstutt á nýja bók sem ég var að lesa og lofaði að deila með ykkur. Hún var gefin út í síðustu viku og nefnist Modern Country: Inspiring Interiors for Contemporary Country Living eftir Caroline Clifton-Mogg. Útgefandi er Jacqui Small. Ég fékk sent eintak frá forlaginu og skrifaði um bókina á ensku útgáfu bloggsins í dag ef þið hafið áhuga á að kíkja, en hér er smá sýnishorn úr bókinni sem er virkilega falleg.


myndir:
Allar myndir frá Jacqui Small, úr bókinni Modern Country eftir Caroline Clifton-Mogg

miðvikudagur, 17. september 2014

Tískuvikan í Mílanó: Gucci - London: Paul Smith



Nú er tískuvikan í Mílanó hafin en ég er alltaf spennt eftir henni því ítölsku tískuhúsin geta eiginlega ekki klikkað. Gucci kynnti sína línu í dag en þar er Frida Giannini við völd og hún var innblásin af 8. áratugnum. Það var margt fallegt í línunni og mikið um föt sem eru alltaf í tísku, eða hverfa í smá stund og koma svo aftur. Litapalettan innihélt eitthvað fyrir alla og gallaefni og rússkinn voru áberandi. Og ekki má gleyma öllum fallegu aukahlutunum; dásamlegu úrvali af beltum, töskum, klútum og skófatnaði.


Mig langaði að birta þessa tvo kjóla í fullri stærð en það voru ekki til myndir af þeim í stærri upplausn, því miður. Dressið hér að neðan er svolítið skemmtilega náttfatalegt. Ég er lúmskt skotin í því og fíla mynstrið.


Ég get ekki sagt að ég sé búin að skoða allt sem birtist á tískupöllunum í London en það sem ég gaf mér tíma til að renna í gegnum höfðaði ekkert sérstaklega til mín. Það var eiginlega bara Paul Smith sem heillaði mig með alls kyns röndum og þægilegum og einföldum flíkum.


myndir:
1-5: Gucci vor 2015 | 6-11: Paul Smith vor 2015 af vefsíðunni Style.com

þriðjudagur, 16. september 2014