
Ég er komin í jólafrí og þessa dagana fylgir mér vænn bunki af bókum. Ekki að ég þurfi að bera þær langar leiðir því hér í Austurríki er allt lokað vegna kófsins. Sumar voru á síðasta bókalista, sem ég á eftir að klára, aðrar eru nýjar sem munu rata á næstu tvo lista. Á mánudaginn barst í hús
Three Rings: A Tale of Exile, Narrative, and Fate eftir Daniel Mendelsohn, sem er rithöfundur, gagnrýnandi og prófessor í klassískum fræðum. Bókin átti að fara undir tréð í ár, jólagjöf frá mér til mín, en ég gat ekki lagt hana frá mér þegar ég byrjaði að lesa hana í kaffipásu. Hún er stutt og inniheldur þrjár ritgerðir sem eru áhugaverð blanda af ævisögulegum skrifum, sögu og bókmenntarýni, sem tengjast höfundunum Erich Auerbach, François Fénelon og W. G. Sebald. Ef þið hafið gaman af bókum um bækur þá gæti þessi höfðað til ykkar.
Önnur bók í bunkanum er ritgerðasafn eftir Vivian Gornick,
Approaching Eye Level. Mín fyrsta bók eftir hana og ekki sú síðasta. Hún rennur vel niður með kaffi og biscotti eins og ég spáði fyrir í síðustu bloggfærslu.

Í Lestrarkompunni hef ég fjallað um bækur af tilteknum bókalista en fann fyrir einhverju síðan að mig langaði að breyta til, að hafa hana tilviljanakenndari og í takt við líðandi stund. Mig vantaði líka færsluflokk til að halda til haga bókatengdum krækjum. Ég nefndi það einu sinni að það hefði aldrei verið hugmyndin að tjá mig um allar bækurnar á bókalistunum. Ég er vandlát á bækur og verð sjaldan fyrir vonbrigðum með þær sem rata á þá. Stundum þegar ég er mjög ánægð með bók þá langar mig bara að skrifa, Þetta er frábær bók, og ekkert meir. En það kallar varla á færslu; þá henta Instagram eða Twitter betur.

Nýlega keypti ég:
✔ Suppose a Sentence eftir Brian Dillon
✔ The Rings of Saturn eftir W. G. Sebald
... bætti á óskalistann:
✔ The Krull House eftir Georges Simenon
... forgangsraðaði á langar-að-lesa listunum:
✔ skáldskapur:
Oresteia: Agamemnon. Libation-Bearers. Eumenides eftir Æskílos
✔ óskáldað efni:
Trieste eftir Jan Morris
Bókakæti:
✔ Þegar Margaret Busby, formaður dómnefndar Booker-verðlaunanna árið 2020,
tilkynnti að skáldsagan Shuggie Bain hefði unnið og höfundur hennar Douglas Stuart þakkaði fyrir sig á tilfinningaríkan hátt. Ég rak upp gleðiöskur þegar hann vann þrátt fyrir að hafa ekki lesið þessa frumraun hans. Ég vonaði að hann myndi vinna en var hrædd um að það ynni gegn honum að vera hvítur karlmaður.
Hljóðvarpsþættir sem ég mæli með:
▶ Aftur að
Shuggie Bain: Sam Leith, ritstjóri bókaumfjöllunar hjá The Spectator, talaði nýlega við
höfundinn Douglas Stuart á hlaðvarpinu þeirra, The Book Club.
▶ Og hér talar Leith við
Natalie Haynes um konur í grískri goðafræði.
▶ Í samræðum við Eleanor Wachtel hjá Writers & Company, talaði
Martin Amis um bókmenntir, ástir og missi. Virkilega einlægur og hreinskilinn Amis.
▶ Ég kættist þegar ég sá að Stig Abell, fyrrverandi ritstjóri TLS, var kominn með með nýtt hlaðvarp sem kallast Stig Abell's Guide to Reading. (TLS-hlaðvarpið er ekki hið sama án hans.) Nýja hlaðvarpið tengist nýútgefinni bók hans,
Things I Learned on the 6.28: A Guide to Daily Reading. Þessir tveir þættir eru mínir uppáhalds hingað til:
Modern Literary Fiction með Kit de Waal og
English Classics með Sam Leith, áðurnefndum ritstjóra.