föstudagur, 9. desember 2016

№ 6 bókalisti | Bókmenntaleg póstkort



„Give me books, fruit, French wine, fine weather and a little music.“ Þessar línur frá John Keats eru á póstkorti hérna á borðinu. Það er hannað af Obvious State, stúdíói í New York sem hannar pappírsvörur og aðra muni fyrir hina bókmenntahneigðu. Ertu að leita að jólagjöf fyrir bókaunnandann? Leitinni lýkur í vefverslun þeirra þar sem má finna minnisbækur, bókamerki, taupoka og fleira. Þau gefa núna sérstakan hátíðarafslátt. Ég fékk send fjögur póstkort sem voru óvænt gjöf, þakklætisvottur fyrir það að hafa bætt #osfall-merkinu þeirra við eina bókamyndina mína á Instagram þar sem ég vísaði í fyrri bókalista haustsins. Talandi um bókalista, það er kominn tími til að birta hinn síðasta árið 2016.


Þegar finna má um þúsund bækur á óska- og langar-að-lesa-listanum þá er ekki auðvelt að forgangsraða þeim, en ég er alveg viss um að fyrstu tvær á listanum verði undir trénu þessi jól. Mig langaði að þakka einum bókabloggara fyrir að hafa mælt með bókinni eftir Carrión en glataði tenglinum þegar harði diskurinn minn hrundi fyrir nokkrum vikum síðan. Bókin er löng ritgerð um hvers vegna bókabúðir skipta máli og hann fer með lesandann á ferðalag um heiminn og heimsækir ýmsar bókabúðir, eins og Shakespeare & Company í París, Strand í NY og Librairie des Colonnes í Tangier, til að nefna nokkrar. James Wood er fastur penni og bókagagnrýnandi hjá The New Yorker og bókin hans er blanda æviminninga og gagnrýni. Hér er síðasti bókalistinn 2016:

1  Bookshops  · Jorge Carrión
2  The Nearest Thing to Life  · James Wood
3  The Makioka Sisters  · Jun'ichirō Tanizaki
4  The Noise of Time  · Julian Barnes
5  All We Shall Know  · Donal Ryan
6  A Man in Love: My Struggle 2  · Karl Ove Knausgård
7  Boyhood Island: My Struggle 3  · Karl Ove Knausgård
8  The Return: Fathers, Sons and the Land in Between  · Hisham Matar


Í minnisbókina var ég byrjuð að nóta hjá mér hugmyndir að japönskum bókalista til að deila síðar. Mig hefur lengi langað til að lesa bók Tanizaki og gat ekki beðið lengur þegar ég áttaði mig á því að ég gat pantað eintak á bókasafninu. Ég hef ekki lokið lestri á bókum Zadie Smith á síðasta bókalista en er þegar byrjuð að lesa Barnes og Ryan. Sá síðarnefndi er írskur höfundur sem ég uppgötvaði bara nýlega og mér líkar ritstíll hans. Ég er ansi spennt að halda áfram að lesa sjálfsævisögulegu skáldsögurnar hans Karl Ove Knausgård. Þegar ég kláraði fyrstu My Struggle bókina langaði mig að fara beint á bókasafnið að sækja þá næstu. Allt það jákvæða sem hefur verið sagt og skrifað um hana reyndist satt og ég held að næstu tvær standi undir væntingum mínum. Ég hlakka til að lesa The Return, æviminningar líbíska skáldsins Hisham Matar. Hann var bara nítján ára þegar föður hans var rænt í Líbíu, sem var þá undir stjórn Gaddafi, og það er líklegt að hann hafi dáið í fangelsi í Trípólí. Fyrir mörgum árum síðan las ég fyrstu skáldsögu Matar, In the Country of Men (Í landi karlmanna í ísl. þýð.). Ég man ekki lengur smáatriðin en man að hún hróflaði við mér.


Mér finnst gaman að tengjast lesendum bloggsins og það er skemmtilegt að fá tölvupóst frá ókunnugu fólki sem les bloggið reglulega (sumir vilja frekar senda póst heldur en að skrifa athugasemd sem er í góðu lagi), sem hefur kannski verið hrifið af bók sem ég deildi. Síðan ég fór að birta bókalistana hef ég fengið nokkra tölvupósta með spurningum eins og: Líkaði þér þessi bók? Ætlarðu að fjalla um þessa? Í svörum mínum bendi ég á þetta: bókalistarnir er aðallega á blogginu vegna þess að ég er mikil bókakona og er bara að gefa fólki hugmyndir að lesefni. Það stendur ekki til að skrifa ritdóm um hvert einusta verk á bókalistunum. Greinilega eru sumir lesendur forvitnir eða hafa áhuga á að vita hvað mér finnst þannig að héðan í frá er hugmyndin sú að skrifa kannski nokkrar línur í athugasemdakerfi hverrar bókalistafærslu, eftir að hafa klárað allt á listanum. Leyfið mér aðeins að hugsa málið.

Ég hef notið þess að lesa bækurnar á listum þessa árs með örfáum undantekningum. Kannski mun ég koma þeim hugsunum í orð í sér færslu. Leyfið mér að hugsa það líka.

Einn lesandi spurði mig hvaða leskrókur væri í uppáhaldi. Ég á nokkra en þessa dagana hef ég aðallega verið að lesa í borðstofunni á meðan ég nýt langs hádegisverðar. Ég smellti mynd af algengri sýn: Á þeim degi var það pasta, í dag var það hummus og pítubrauð.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ummæli birtast á blogginu eftir samþykkt. Ummæli með sölutenglum eru tilkynnt og síðan er þeim eytt.