Sýnir færslur með efnisorðinu vera brittain. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu vera brittain. Sýna allar færslur

fimmtudagur, 14. júlí 2016

Testament of Youth eftir Vera Brittain

Æviminningar: Testament of Youth eftir Vera Brittain · Lísa Stefan


Þann 1. júlí þegar þess var minnst að hundrað ár voru liðin frá orrustunni við Somme vildi það svo til að ég var að lesa síðustu síðurnar í Testament of Youth, sjálfsævisögu frá tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar eftir skáldkonuna, femínistann og friðarsinnann Veru Brittain (1893-1970). Draumur hennar um að nema við Oxford rætist þegar styrjöldin brýst út og eftir eitt ár í Sommerville College gerir hún hlé á námi sínu til þess að gerast sjálfboðaliði í hjúkrun. Með aðstoð dagbókarfærslna og bréfa lýsir bókin hryllingi stríðsins og eftirmálum - hún missti unnusta, bróður og vini. Bókin var fyrst gefin út árið 1933 og hefur allar götur síðan náð til nýrrar kynslóðar breskra lesenda.

Kvikmyndin Testament of Youth (2014) er byggð á bókinni og skartar leikkonunni Aliciu Vikander í aðalhlutverki, sem tekst vel að koma alvarlegum tón Brittain til skila. Ég verð að minnast á myndina og um leið beygja þá reglu að nota bara mínar eigin myndir á blogginu með því að deila hluta af fallegri leikmyndinni: Leikmyndahönnuðurinn Robert Wischhusen-Hayes á heiðurinn af svefnherberginu og dásamlegum munum bókaormsins í húsi foreldranna í Buxton, Derbyshire.

Alicia Vikander í hlutverki Veru Brittain

Saga Brittain flokkast ekki undir skemmtilestur. Hún er alvarleg og tilfinningaþrungin, fjallar um ást og vináttur á stríðstímum, og hvernig stríð stelur æskunni og þvingar ungt fólk til þess að þroskast hraðar en ella. Stundum skildi ég ekki hvernig Vera hélt út sem sjálfboðaliði. Vinnutíminn, álagið, aðstæðurnar; þetta fór langt út fyrir þreytumörk - hún starfaði í Englandi, á Möltu og í Frakklandi. Ofan á þetta hvíldi svo stöðugur ótti um að missa einhvern náinn:
Even when the letters came they were four days old, and the writer since sending them had had time to die over and over again. (bls. 121)
Oftar en einu sinni bugaðist hún eða veiktist en alltaf reis hún upp að nýju og hélt áfram. Það gerði hún fyrir þá sem hún hafði misst og þá sem enn voru að berjast.


Án þess að dvelja mikið við smáatrði þá kynnist hún Roland Leighton í gegnum bróður sinn Edward áður en hún fer til Oxford. Með hann í fremstu víglínu þróast samband þeirra í gegnum bréfaskrif. Ríkjandi er óttinn um að hann falli í bardaga eða að stríðið gerbreyti honum:
To this constant anxiety for Roland's life was added . . . a new fear that the War would become between us - as indeed, with time, the War always did, putting a barrier of indescribable experience between men and the women whom they loved, thrusting horror deeper and deeper inward, linking the dread of spiritual death to the apprehension of physical disaster. (bls. 122)
Þeir sem hafa séð kvikmyndina muna líklega eftir senu á strönd þar sem Roland verður ofbeldisfullur. Það gerðist ekki í alvörunni heldur var notað til að auka dramatíkina. Í raun átti parið í stuttri rimmu í gegnum bréfaskrif, en mér varð hugsað til þessarar senu þegar ég las þessa tilteknu lýsingu á bróður hennar:
[H]e was an unfamiliar, frightening Edward, who never smiled nor spoke except about trivial things, who seemed to have nothing to say to me and indeed hardly appeared to notice my return. (bls. 324)
Samband systkinanna var fallegt og þarna var Edward mjög ólíkur sjálfum sér. Hann var einn þeirra hermanna sem særðist í orrustunni við Somme og var sæmdur orðu fyrir hugrekki sitt í henni. Hann féll í stríðinu árið 1918. Þegar ég var komin á þennan stað í bókinni fannst mér handritshöfundinum Juliette Towhidi hafa tekist vel til. Þessi sena á ströndinni er ansi mögnuð.


Aftur að bókinni. Þrátt fyrir hrylling stríðsins eru nokkur ánægjuleg stolin augnablik. Í mínu uppáhaldi er það einn daginn þegar Vera hættir fyrr í vinnunni, fer í leikhús og skrifar svo í bréfi til Roland:
Do you ever like to picture the people who write to you as they looked when they wrote? I do. At the present moment I am alone in the hostel common-room, sitting in an easy chair in front of the fire, clad precisely in blue and white striped pyjamas, a dark blue dressing-gown and a pair of black velvet bedroom slippers. (bls. 199)
Frá skotgröfunum svarar hann ástúðlega:
I should so like to see you in blue and white pyjamas. You are always correctly dressed when I find you, and usually somewhere near a railway station, n'est-ce pas? . . . It all seems such a waste of Youth, such a desiccation of all that is born for Poetry and Beauty. (bls. 200)
Þetta var árið 1915 og þau trúlofuð. Aðeins nokkrum blaðsíðum síðar er Roland allur. Þýsk leyniskytta varð honum að bana rétt fyrir jólafríið hans.


Í annarri þáttaröð Downton Abbey er sena í fyrri heimsstyrjöldinni þar sem Lady Sybil [Findlay] segir við Isobel Crawley [Wilton]: „Stundum finnst mér sem allir þeir menn sem ég hef dansað við séu látnir“ („Sometimes, it feels as if all the men I ever danced with are dead“ - 1. þáttur, á ca. 10 mín.). Þessi setning festist í huga mér. Ég held að það sé vegna þess að Ísland er herlaust og það er ekki hluti af þjóðarminni okkar að senda unga menn í stríð. Þessi gríðarlegi missir og mannlegu fórnir í stríði eru fjarri okkur (ungir menn af íslenskum uppruna í Vesturheimi börðust og létust í stríðinu en það er önnur saga). Við vitum af vopnahlésdeginum en hann er ekki partur af sögu okkar og enginn ber deplasól (rauðan valmúa) í barmi til minningar um fallna hermenn eins og gert er hér í Bretlandi. Síðan ég fluttist hingað finnst mér ég smám saman vera að ná utan um Stríðið mikla, eins og það er kallað, og áhrif þess á breska þjóð. Bók Brittain hjálpaði svo sannarlega að auka skilning minn.

Eftir stríðið fór Vera Brittain aftur til Oxford. Á einum tímapunkti þegar taugarnar og martraðirnar tóku sinn toll voru þetta hugsanir hennar:
Why couldn't I have died in the War with the others? . . . I'm nothing but a piece of wartime wreckage, living on ingloriously in a world that doesn't want me! (bls. 448)
Með tímanum dofnuðu tilfinningaleg ör stríðsins. Hún komst í gegnum þessa reynslu með hjálp Winifred Holtby, vinkonu sem hún kynntist í Oxford (báðar urðu rithöfundar; Holtby lést árið 1935). Vera útskrifaðist, flutti ræður opinberlega fyrir Þjóðabandalagið (League of Nations), gifti sig og gerðist talsmaður friðar.

Kit Harington og Alicia Vikander sem Roland og Vera í Testament of Youth (2014)

1: Mynd af deplasólum í bakgrunni á minni mynd er eftir Andrew Montgomery, úr bókinni Country eftir Jasper Conran | 2-5: skjáskot (stillur af svefnherbergi ófáanlegar) | 6: stilla af vefsíðunni Alicia Vikander.com | heimild: BBC Films, Heyday Films, Screen Yorkshire + BFI | leikstjórn James Kent · handrit Juliette Towhidi · búningar Consolata Boyle



föstudagur, 17. júní 2016

№ 2 bókalisti: flottar bókahillur

№ 2 bókalisti: bókahillur · Lísa Stefan


Ég er ástfangin af bókahillum. Ekki í fyrsta sinn. Með kaffibollanum hef ég verið að fletta fram og til baka innliti í hús í LA sem er með svo mörg smáatriði á hreinu (júlítölublað Elle Decoration UK, „House on the Hills“, ljósmyndari Stephanie Bjelkstam). Í opnum hillum í stofunni er bókum og skrautmunum raðað smekklega án þess að hillurnar virki yfirhlaðnar; bókum er raðað lóðrétt og lárétt sem gerir stíliseringuna enn áhugaverðari. Það er sem hillurnar andi og þær kallast á við gólfmottuna. Virkilega vel gert. Þessa dagana er ég að lesa nokkrar bækur og fljótlega mun ég gagnrýna eina hér á blogginu: Decorative Textiles from Arab and Islamic Cultures. Egypska bómullarábreiðan með ásauminum út til vinstri er smá sýnishorn.

Bókalisti sumarsins er tilbúinn (kannski ætti ég að segja sá fyrri þessa sumars) og samanstendur af leikritum og ævisögulegu efni. Nýverið skilaði ég á bókasafnið æviminningum Arthurs Millers Timebends (virkilega vel skrifuð bók sem ég mæli með) og fékk að láni tvö leikrit eftir hann. Á sama degi var ég að fletta uppi verkum eftir Virginiu Woolf á netinu og var svo heppin að finna tvær notaðar bækur (3. bindi dagbókar hennar er komið í hús og lítur út eins og nýtt - elska svoleiðis fund). Hér er listinn minn:

1  All My Sons  · Arthur Miller
2  Death of a Salesman  · Arthur Miller
3  Off the Road: Twenty Years with Cassady, Kerouac and Ginsberg  ·
Carolyn Cassady
4  The Diary of Virginia Woolf - Volume 3: 1925-1930  ritstj. Anne
Olivier Bell
5  The Letters of Virginia Woolf - Volume II: 1912-1922  ritstj. Nigel
Nicolson og Joanne Trautmann
6  Testament of Youth: An Autobiographical Study of the Years 1900-1925  ·
Vera Brittain

Sumir myndu kalla þetta frekar þungan sumarlestur en ég er bara ekki sú tegund lesanda sem nælir sér í stafla af léttefni í næstu bókabúð. Börnin voru að gera grín af mér um daginn og sögðu að ég læsi skrýtnar bækur. Ég er að reyna að muna rétt orðalag sem eitt þeirra notaði, „enskar yfirstéttarsnobbbókmenntir“ (English upper-class snob literature) eða eitthvað í þá áttina. Ég skellti upp úr.


Á aðeins persónulegri nótum: Ég óska ykkur gleðilegs þjóðhátíðardags en í dag eigum við hjónin 18 ára brúðkaupsafmæli. Í dag er einnig föstudagspizzudagur en eiginmaðurinn er staddur erlendis vegna vinnu. Við börnin ætlum bara að fá okkur franska osta, snittubrauð og vínber . . . og súkkulaði. Eigið góða helgi!

Bókhillumynd á minni mynd: Elle Decoration UK, júlí 2016, bls. 116 · Stephanie Bjelkstam