þriðjudagur, 22. mars 2016

№ 1 bókalisti: M Train eftir Patti Smith

№ 1 bókalisti: M Train eftir Patti Smith · Lísa Stefan


Ég sit hérna með kaffibollann minn í örygginu á mínu eigin heimili. Mér er brugðið og ég finn fyrir dofa og sorg yfir atburðum í Brussel. Innra með mér er líka einhver tilfinning sem ég á ekki orð yfir. Eins og flest ykkar vita bjuggum við í Belgíu í tvö ár og fyrstu hugsanirnar voru, Er í lagi með vini okkar? Flestir þeirra búa í Antwerpen og sem betur fer höfum við ekki fengið neinar slæmar fréttir. Þegar ég horfi á fréttirnar þá get ég ekki annað en hugsað um það að íslenska sendiráðið er bara rétt hjá Maelbeek-stöðinni. Þegar maður hefur rölt um þessar götur þá er þessi óhugnaður á einhvern hátt of nálægt manni.

···

Horfandi á bunkann sem ég kom með heim af bókasafninu fannst mér það skrýtið að fara beint frá því að lesa dagbækur og verk eftir Virginiu Woolf yfir í M Train eftir Patti Smith. Það allavega hljómaði skrýtið. Skyndilega kom upp í kollinn á mér, Bíddu nú við, sá ég ekki viðtal við Patti sem var tekið í Charleston-húsinu? Listamennirnir Vanessa Bell (systir Woolf) og Duncan Grant áttu þar heimili. Ég leitaði og fann viðtalið á YouTube og þarna var hún, að dást að húsinu og listrænu lífi Bloomsbury-hópsins. Ég fann meira að segja upptöku af því þegar Smith les verk eftir Woolf fyrir sal fullan af fólki.

Að fara frá Woolf yfir í Patti Smith virkaði núna ósköp eðlilegt.

Patti Smith byrjar M Train á orðunum: "Það er ekki svo auðvelt að skrifa um ekkert" (It's not so easy writing about nothing). Ef hún er að skrifa um ekkert þá gerir hún það svo sannarlega vel. Ég gat varla slitið mig frá lestrinum og áður en ég kláraði bókina var ég ákveðin í að kaupa mér eintak. Til að gefa ykkur hugmynd um þetta „ekkert“ þá drekkur lesandinn kaffi með Patti í Greenwich Village-hverfinu í New York (og syrgir líklega Café 'Ino á Bedford Street), heimsækir grafir rithöfunda í ýmsum heimshornum og horfir á glæpaþáttaseríur. Muniði eftir Linden og Holden úr The Killing, amerísku útgáfunni af dönsku seríunni Forbrydelsen? Þau eru þarna. Haruki Murakami er þarna; eftir að Patti las bók hans The Wind-Up Bird Chronicle varð ekki aftur snúið. Það mikilvægasta á síðunum er nærvera eiginmanns hennar Fred Sonic Smith sem féll frá 1994. Á einum punkti kemur hjartnæmt ákall: „Þú hefur verið nógu lengi í burtu. Komdu bara aftur“ (You've been gone long enough. Just come back - bls. 171). Að vissu leyti fjallar M Train um ekki neitt, eftir lesturinn situr samt svo mikið eftir. Einu vonbrigðin voru að bókin tók enda. Ég get ekki beðið eftir því að redda mér eintaki af Just Kids, æviminningunum sem færðu henni verðlaunin National Book Awards árið 2010. Skömmustuleg verð ég að viðurkenna að þá bók hef ég ekki lesið.


Kannski undir áhrifum Virginiu Woolf, sem stundum skrifaði bókalista í dagbókina sína, deili ég mínum bókalista fyrir þetta vor:

1  M Train  · Patti Smith
2  Among the Bohemians  · Virginia Nicholson
3  The Shadow of the Sun  · Ryszard Kapuscinski
4  Timebends: A Life  · Arthur Miller
5  The Great Railway Bazaar: By Train Through Asia  · Paul Theroux
6  African Textiles  · John Gillow
7  Japanese Textiles: In the Victoria and Albert Museum  · Anna Jackson
8  Art: A New History  · Paul Johnson

Fyrstu bókina er ég jú búin með. Ég er byrjuð á næstu tveimur á listanum og verð að segja að bók Nicholson kom mér skemmtilega á óvart. Þegar ég byrjaði á sjálfsævisögu Miller þá fangaði hún mig strax og ég held að eitt af leikritum hans rati á næsta bókalista. Það eru nefnilega mörg ár síðan ég las verk eftir hann.

№ 1 bókalisti: sjálfsævisaga Arthurs Miller, Timebends: A Life · Lísa Stefan

mánudagur, 14. mars 2016

Wild Thing í red emerald frá Lewis & Wood

Wild Thing mynstrið frá Lewis & Wood · Lísa Stefan


Textílprufan hér að ofan er bútur af efninu Wild Thing í litnum red emerald frá Lewis & Wood sem ég hef dáðst að mánuðum saman. Síðasta haust sendu þau mér bunka af textílprufum og þessi tiltekna var sú fyrsta sem fangaði athygli mína. Ég hafði séð efnið í heild sinni - djarft mynstur með laufum, blómum og dýralífi - á heimasíðunni og get ekki sagt að það hafi höfðað neitt sérstaklega til mín, kannski vegna þess að það voru læti í því; eins og það væri of villt fyrir minn smekk. Þegar ég sneri prufunni við til að skoða upplýsingarnar á bakhliðinni þá hélt ég fyrst að búturinn hefði verið ranglega merktur. Þegar hugurinn fór svo smám saman að átta sig á því að þetta væri í raun Wild Thing mynstrið þá gerði ég mér grein fyrir því hversu mikilvægt það er að skoða vel smáatriði í textílhönnun áður en maður dæmir.



Mótífin í mynstrinu eru blóm, lauf, fuglar og api. Það sem að mínu mati gerir efnið einkum áhugavert er hversu óhefluð jurtalitunin er. Það eru útlínur í efninu en litirnir eru bæði innan og utan lína, sem gerir hönnunina jafnvel villtari og meira lifandi.

Wild Thing í litunum red emerald og ginger kiwi frá Lewis & Wood

Wild Thing mynstrið er fáanlegt í þremur litaafbrigðum: copper cobalt, ginger kiwi, og í fyrrnefndu red emerald. Ég held að copper cobalt afbrigðið (hér að neðan) sé kjörið fyrir þá sem vilja fara eilítið rólegra í sakirnar en fyrir mig hefur red emerald vinninginn. Ég á auðvelt með að sjá það efni fyrir mér sem gluggatjöld í svefnherberginu síðar meir.

Wild Thing í litnum copper cobalt frá Lewis & Wood



miðvikudagur, 2. mars 2016

Casa No Name - hús Deborah Turbeville

Casa No Name - hús Deborah Turbeville · Lísa Stefan


Á föstudaginn lofaði ég að birta síðar nokkrar myndir sem ég smellti af innliti í hús í Mexíkó. Umfjöllunin, sem kallast Destination unknown, birtist í desembertöluhefti 2015 af The World of Interiors (ljósmyndari Ricardo Labougle). Húsið átti Deborah Turbeville heitin (1932-2013), en hún var þekktur tískuljósmyndari og lifði eins konar hirðingjalífi. Hún skírði húsið Casa No Name, en það er staðsett í hinni sögulegu borg San Miguel de Allende í mexíkóska ríkinu Guanajuato. Þegar Turbeville keypti húsið var það í hræðilegu ásigkomulagi, en ef þið þekkið til verka hennar þá skiljið þið út af hverju það heillaði hana. Vinur hennar sem hafði umsjón með framkvæmdunum, sem tóku tvö ár, sagði vinnumönnunum að gera þetta ekki of fullkomið, „Senjorídan vill hafa það þannig“ (bls. 190). Það er ekkert eitt sem dregur mig að húsinu heldur er það mikilfengleikinn sem hrífur mig; glæsilegt safn af mynstruðum textíl, litir, gifsveggir, þakverönd . . . þetta er það sem meint er þegar talað er um að gera hús að heimili.


Árið 2009 kom út á vegum Rizzoli bókin Casa No Name eftir Turbeville sjálfa. Ég hef séð nokkrar myndir úr henni og hún er ekki allra. Við skulum bara orða það þannig að hún sé öðruvísi bók um innanhússhönnun og innihaldi margar hreyfðar myndir. Eldheitir Turbeville-aðdáendur verða ekki fyrir vonbrigðum.

Ég fann stutt viðtal við Turbeville á YouTube, sem var tekið í húsinu hennar Casa No Name þegar Toast var að ljósmynda þar línuna sína fyrir vor/sumar 2010.


Fyrir alla sem hafa áhuga á tískuljósmyndun get ég mælt með bókinni Deborah Turbeville: The Fashion Pictures. Hún er einnig gefin út af Rizzoli og í henni er að finna hinar frægu en umdeildu baðhúsmyndir sem hneyksluðu margar þegar þær birtust í Vogue árið 1975.
Casa No Name í tímaritinu The World of Interiors · Lísa Stefan


myndir teknar af síðum The World of Interiors, des. 2015, Destination unknown, bls. 182-191

mánudagur, 29. febrúar 2016

Bréf Karen Blixen frá Afríku 1914-1931


Bréf Karen Blixen frá Afríku 1914-1931 · Lísa Stefan


Nýverið kláraði ég að lesa Letters from Africa 1914-1931, safn bréfa rithöfundarins Karen Blixen (skáldanafn Isak Dinesen) sem hún skrifaði til fjölskyldu sinnar í Danmörku á meðan hún bjó í Kenya. Hún kom þangað í ársbyrjun 1914 (fyrsta setningin í ævisögu hennar Jörð í Afríku er: „Ég átti búgarð í Afríku, við rætur Ngong-hæðanna“) og þetta skrifaði hún til móður sinnar árið 1919:
It is so beautiful here, a paradise on earth, when there is enough rain. And in a way, during the times of tribulation one comes to love this intractable country still more; I have a feeling that wherever I may be in the future, I will be wondering whether there is rain at Ngong. (26. feb.)
Ritstjóri Bréfanna var Frans Lasson fyrir Rungstedlund-sjóðinn. Það er mín skoðun að lestur bréfasafna kalli á talsverðan áhuga á viðkomandi persónu og þolinmæði þar sem endurtekningar eru tíðar. (Kaffi hjálpar líka!) Ef þið þekkið þegar til ævi Blixen þá er ekki mikið í bréfunum sem ykkur mun bregða við, en það kom mér á óvart hversu mikið hún þurfti að hafa fyrir því að halda búgarðinum gangandi. Í Jörð í Afríku hlífir hún lesandanum við smáatriðum sem tengjast rekstri búgarðsins. Í bréfum hennar má aftur á móti lesa allt um erfiðið þó svo að Lasson hafi sleppt ýmsum hlutum sem tengdust fjárhagsvandræðunum. Í kvikmynd leikstjórans Sydney Pollack, Out of Africa (1985), er erfiðleikunum vissulega gert skil en þeir voru miklu alvarlegri en myndin náði að sýna og það kemur ekki á óvart að í kvikmyndinni er líf Blixen í Afríku sveipað rómantískum blæ; hún upplifði þar svo sannarlega ánægjulegar stundir.
Bréf Karen Blixen frá Afríku 1914-1931 · Lísa Stefan


Fyrir þá sem hafa ekki lesið Jörð í Afríku (gefin út 1937) þá segir Blixen frá árum sínum í Kenya, en það er engin tímaröð og hún sleppir ýmsu. Í athugasemdum sínum á mynddisknum segir Pollack: „What's beguiling [töfrandi] about Out of Africa isn't what she wrote on the page . . . but in a way what isn't on the page" (Out of Africa, 1985, 6:50). Ég tek undir orð hans en bréf hennar hafa hjálpað mér að fylla í eyðurnar. Það sem ég hjó eftir við lesturinn var einnig það að hún hætti aldrei að sjá fegurðina í umhverfi sínu þrátt fyrir erfiðleikana - þurrkar, uppskerubrestur og stöðug fjárhagsleg pressa.
You must not think that I feel, in spite of it having ended in such defeat, that my "life has been wasted" here, or that I would exchange it with that of anyone I know. . . . A great world of poetry has revealed itself to me and taken me to itself here, and I have loved it. . . . I have been the friend of Somali, Kikuyu, and Masai, I have flown over the Ngong Hills,—"I plucked the best rose of life, and Freja be praised,"—I believe that my house here has been a kind of refuge for wayfarers and the sick, . . . (Bréf til móður sinnar, 17. mars 1931)


Í kvikmynd Pollack er sena sem kremur hjartað í hvert sinn og hefur nú eftir lestur Bréfanna einnig fengið nýja merkingu fyrir mig. Hún á sér stað undir lok myndarinnar þegar kaffimyllan hefur brunnið til kaldra kola og Blixen er gjaldþrota (í raunveruleikanum kviknaði í myllunni en það gerðist fyrr og þau voru tryggð). Blixen [Meryl Streep] er að tala við Denys Finch Hatton [Robert Redford] þegar hún sest upp í bílinn sinn, leggur hönd á kviðinn og fiktar í jakkanum sínum (Out of Africa, 1985, 2:12:06). Á þessum örfáu sekúndum tekst Streep með látbragði einu saman að sýna algjöra uppgjöf Blixen. (Senuna má sjá í stiklu á YouTube, á mín. 3:15.)

Blixen lagði allt í sölurnar til að halda kaffiekrunni gangandi en endanlega ákváðu hluthafarnir í Danmörku (fjölskylda hennar) að selja búgarðinn, sem varð aldrei sú fjárfesting sem Blixen hafði séð fyrir sér. Ég held að hver einasti lesandi Bréfanna óski þess að Blixen vegni vel, að loksins fái hún hina langþráðu, góðu kaffiuppskeru sem breyta mun öllu, en á sama tíma veit lesandinn að það gerist ekki.
But you must not think that I am frightfully depressed and see everything in a tragic light. That is not at all the case; on the contrary, I think that these difficult times have helped me to understand better than before how infinitely rich and beautiful life is in every way and that so many things that one goes around worrying over are of no importance whatsoever. (Bréf til Thomas bróður síns, 10. apríl 1931)

Bréf Karen Blixen frá Afríku 1914-1931 · Lísa Stefan
Í bók sinni, Shadows on the Grass, segir Blixen frá mikilvægi bréfs sem Danakonungur sendi
henni. Söguna um bréfið er að finna í gamalli bloggfærslu á ensku útgáfunni

Annar þáttur sem hélt mér við lestur Bréfanna var að verða vitni að fæðingu rithöfundarins, að skilja umskipti Blixen frá því að vera kaffiræktandi í Afríku til þess að verða rithöfundur eftir að hafa flutt aftur til Danmerkur. Þrátt fyrir allan fjöldann af innfæddum sem störfuðu á kaffibúgarðinum var hann einangrandi staður, í þeirri merkingu að hann var einangraður frá lista- og menningarlífi. Bókmenntir, ljóðlist og tónlist voru hluti af uppvexti Blixen en í Afríku gat hún ekki farið á tónleika eða í leikhús. Hún talar um ákveðin verk og höfunda í bréfum sínum og til að auka bókakostinn biður hún fjölskylduna að senda sér bækur, og tónlist. Listir og náttúra og dýralíf Afríku, sérstaklega Ngong-hæða, voru áberandi viðfangsefni í bréfum hennar. Mér finnst það við hæfi að ljúka þessari færslu með tilvísun úr æviminningum hennar:
If I know a song of Africa - I thought - of the giraffe, and the African new moon lying on her back, of the ploughs in the fields, and the sweaty faces of the coffee-pickers, does Africa know a song of me? Would the air over the plain quiver with a colour that I had had on, or the children invent a game in which my name was, or the full moon throw a shadow over the gravel of the drive that was like me, or would the eagles of Ngong look out for me? (Jörð í Afríku)

Einn af mörgum kaffibollum sem ég drakk við lesturinn